12.03.2026 22:12

Bæði Hafróskipin á Akureyri i Gær

Smá viðbót við frettina um  Þórunni Þórðardóttur HF 300 ef að vel er gáð efst i Hægra horninu 

má sjá glitta i Árna Friðriksson RE 200 þar sem að hann liggur við bryggju Útgerðarfélags Akureyringa 

en bæði skipin héldu frá Akureyri skömmu eftir miðnætti siðastliðna nótt 

                    3045 Þórunn Þórðardóttir HF 300 við Torfunesbryggju mynd þorgeir Baldursson 11 mars 2026

                                            3045 Þórunn Þórðardóttir HF 300 mynd þorgeir Baldursson 

11.03.2026 22:43

Þórunnn Þórðardóttir HF 300

Bæði Skip Hafrannsóknarstofnunnar komu til Akureyrar i morgun sennilega til að hvila áhafninar 

Þórunn Þórðardóttir lá fyrir neðan miðbæinn við  Torfunesbryggju sem að verið er að endurbyggja 

hérna koma nokkar myndir 

                         Þórunn Þórardóttir HF 300 við bryggju á Akureyri i kvöld mynd þorgeir Baldursson

                      Þórunn Þórðardóttir HF 300 á milli Kirkjuturna Akureyrarkirkju mynd þorgeir Baldursson 

06.03.2026 22:42

Grálúðulandanir á Akureyri i dag

I morgun 6 mars 2026 komu til löndunnar á Akureyri frystitogarinn Snæfell EA 310 og netabáturinn Kristrún Re 177 

Bæði stunda skipin Grálúðuveiðar Snæfellið i troll en Kristrún i net aflinn var með þokkalegasta móti 

Þrátt fyrir erfitt veður fyrir vestan og austan þar sem skipin hafa verið við veiðar skipin héldu 

Strax aftur til veiða að löndun lokinni Snæfell EA i vesturkantinn milli islands og Grænlands 

og Kristrún RE austur i Héraðflóa 

                               2212 Snæfell EA310 löndun á Akureyri 6 mars 2026 mynd þorgeir Baldursson 

                                            3017 Kristrún RE177 6 mars 2026  mynd þorgeir Baldursson 

                                                      2212 Snæfell EA 310 og 3017 Kristrún RE 177  6 mars 2026 mynd þorgeir Baldursson 

 

05.03.2026 22:28

Sólberg ÓF 1 með verðmætasta túr skipsins

                              2917 Sólberg ÓF 1 Löndun á Siglufirði mynd þorgeir Baldursson 

Frystitogarinn Sólberg ÓF kom til hafnar á Akureyri þriðjudaginn 3. mars eftir feikilega góðan túr. Aflinn var 1.090 tonn en uppistaðan var að mestu þorskur og ýsa.

Einar Númason skipstjóri segir í samtali við 200 mílur að þótt aflinn sé ekki sá mesti sem hann hafi séð sé hann þó líkast til með þeim verðmætari.

Aflaverðmæti allt að 940 milljónir

„Nei, þetta er ekki það mesta sem við höfum fengið en þetta var tiltölulega stuttur túr, 29 dagar höfn í höfn,” segir Einar og bætir við að aflaverðmætið sé sambærilegt við það mesta á Sólbergi. „En það voru 1.400 tonn á bak við það.“

Einar áætlar að aflaverðmætið sé á bilinu 930-940 milljónir og ljóst er að menn megi vel við una eftir túrinn. „Já, þetta eru góð laun, það fer ekkert á milli mála. Menn eru mjög sáttir, bæði útgerð og áhöfn,“ segir hann. „En þetta hefst ekkert nema með góðri áhöfn og veiðiheimildum.“

Einar Númason í skipstjórastólnum.

Einar Númason í skipstjórastólnum. mbl.is/Þorgeir

Einar segir að í túrnum hafi verið veitt á Vestfjarðamiðum. Byrjað var að veiða á Strandagrunni þar sem Einar segir að þorskveiðin hafi verið góð en veðrið öllu verra. Þá hafi ágætis reytingur verið í Þverálnum og á Barðagrunni hafi verið góð ýsuveiði en líka nokkuð af þorski.

Túrnum lauk í Víkurálnum þar sem Einar segir að bæði ýsu- og þorskveiði hafi verið mjög góð. „Það kom svona dagur og dagur þar sem var leiðindaveður en við gátum alltaf verið að,“ segir Einar.

                                      oliutaka i Krossanesi og Mjölinu landað mynd þorgeir Baldursson 2026

Með aflahæstu skipum

Sem fyrr segir bar Sólberg fyrst að höfn á Akureyri þar sem fiskimjöli er landað og olía tekin. Að því búnu var haldið til Siglufjarðar þar sem frosnum afurðum var landað í gær. Að sögn Einars hélt Sólberg aftur á miðin um tíuleytið í gærkveldi.

Sólberg hefur lengi verið með fengsælustu skipum íslenska skipaflotans og hefur oftar en einu sinni ratað á lista yfir aflahæstu skipin. Við upphaf fiskveiðiársins fékk skipið úthlutað mesta aflamarkið, eða 10.430 þorskígildistonn. Fast á hæla þess fylgdi Guðmundur í Nesi RE með 9.109 tonn og Drangey SK með 6.442 tonn.

01.03.2026 20:58

Kaldbakur EA1 landaði Fullfermi i Hafnarfirði

Það var heldur betur stuð á skipverjunum á Kaldbak EA1 þegar þeir komu til löndunnar i Hafnarfirði 

i dag með fullt skip og rúmlega það og fast á hæla þeirra kom Björg EA 7 með góðan afla og er verið

að klára að landa úr henni Kaldbakur hélt strax til veiða að lokinni löndun og er gert ráð fyri þvi að 

Björg EA haldi til veiða eftir löndun hérna koma nokkrar myndir af Kaldbak EA i dag 

                                   2891 Kaldbakur EA 1 i Hafnarfirði i dag mynd þorgeir Baldursson 

                                             Skipverjar á Kaldbak gera endana klára mynd þorgeir Baldursson 

                                              Siglt inn til Hafnarfjarðar i dag mynd þorgeir Baldursson 

                            Hafnarstarfsmenn  Hafnarfjarðarhafnar klárir i Endana mynd þorgeir Baldursson 

 

28.02.2026 23:34

þrir stubbar á Toginu

                                                                      Þrir stubbar á Toginu við Eyjar mynd þorgeir Baldursson 
 

23.02.2026 22:15

Hvalaskoðun i dag Hólmasól

Nokkrar myndir frá Deginum farið var i hvalaskoðun með Hólmasól 

frá Akureyri og var um 2 tima stim framundan þar sem að sáust 5-6 Hnúfubakar

og var ekki annað að sjá en að þeir hefðu nóg að bita og brenna og var mikið lif að sjá á dýptarmæli 

og greinilegt að mikið er af sildarkræðu er i firðinum hérna koma nokkrar myndir dagsins 

                                             Islenski fáninn er alltaf i fyrstasæti mynd þorgeir Baldursson 

                                        Hnúfubakur á leið i djúpköfun mynd þorgeir Baldursson 

                                   500 Whales i Hvalaskoðun i dag mynd þorgeir Baldursson 

 
                                   2922 Hólmasól i Hvalaskoðun i Eyjafirði mynd þorgeir Baldursson 

22.02.2026 21:11

Mikill fjöldi i Hliðarfjalli i Vetrarfrii

                              Smekkfull bilastæði i Hliðarfjalli i morgun 22 febrúar mynd þorgeir Baldursson 

Heimild Akureyri.net 

myndir Þorgeir Baldursson 

Margir eru á skíðum í Hlíðarfjalli í dag, þriðja daginn í röð, en gestir þó færri en í gær þegar örtröð var á bílastæðum og bílaröðin náði niður fyrir frístundabyggðina Hálönd, eins og akureyri.net sýndi með frábærum myndum Þorgeirs Baldurssonar.

  • Frétt akureyri.net í gær:

Skíðablíða og bílaröð niður fyrir Hálönd

Aðstæður í dag eru afar góðar. Sólin skín að vísu ekki en færið er gott, sex stiga frott og hægur vindur. Brynjar Helgi Ásgeirsson, forstöðumaður skíðasvæðisins, taldi í gær að bæði þá og á föstudag hefðu verið um 3.500 manns í fjallinu en hann sagði við akureyri.net að líklega yrðu alls 2.500 til 3.000 manns á svæðinu í dag.

                                                  Löng röð var i fjarkann i morgun mynd þorgeir Baldursson 

  • Frétt akureyri.net í gær:

Skíðablíða og bílaröð niður fyrir Hálönd

                                Bilalestin náði niður að Hótelinu við Hálönd mynd þorgeir Baldursson 

Fjöldi fólks er á skíðasvæðinu í Hlíðarfjalli í dag enda aðstæður eins og best verður á kosið; gott færi í brekkunum, allar lyftur í gangi og veðrið dásamlegt, sól, logn og nokkurra stiga frost.

Ekki er nóg með að margir séu á skíðasvæðinu heldur er fjöldi fólks einnig á leiðinni þangað. Langt er síðan röð bíla á leið í fjallið hefur verið jafn löng; eins og sjá má á myndum Þorgeirs Baldurssonar, sem teknar voru um kl. 11 náði röðin niður fyrir frístundabyggðina Hálönd sem er miðju vegu milli efstu byggðar og skíðasvæðisins.

Auk heimamanna eru mjög margir gestir í bænum vegna vetrarfría í skólum á borgarhorninu. Skíðasvæðið var opnað kl. 10 í morgun lyftur verða í gangi til kl. 17. Opið verður á sama tíma á morgun, sunnudag.

Brynjar Helgi Ásgeirsson, forstöðumaður skíðasvæðisins, segir að í gær hafi verið um 3.500 manns í fjallinu og hann reiknar með svipuðum fjölda í dag. „Á leiðinni upp eftir er bíll við bíl og stæðin okkar eru full. Bílafjöldinn er það sem erfiðast er við að eiga en allt gengur vel á svæðinu. Lyfturnar ganga fínt,“ segir hann við akureyri.net

Einstaka sinnum hefur fólki verið gert kleift að leggja bílum sínum á svæði Bílaklúbbs Akureyrar við Hlíðarfjallsveg, nokkru neðan Hálanda, og boðið far þaðan með rútu upp að skíðasvæðinu. „Við gerðum það síðast fyrir tveimur árum ef ég man rétt en það var ekki mikill vilji til að nýta sér það. Flestir vilja frekar fara alla leið upp eftir á eigin bíl.“

                             Alls er talið að um 400 bilar hafi verið i röðinni mynd þorgeir Baldursson 

 

21.02.2026 00:49

Hvala skoðun frá Hauganesi i dag

Það var mikið um að vera i dag i Eyjafirði hvalaskoðunnarbátar að koma i höfn og aðrir að fara i túr 

bliðuveður og sól framan af en fór að snjóa þegar leið á daginn mikið lif bæði af hnúfubökum 

og svartfugli og sáum við skipverjarnir á Whales tvö stökk i dag sem að er ekki algegnt á þessum árstima 

hérna koma nokkrar myndir eftir daginn 

                                               Hnúfubakur stekkur  i Eyjafirði i dag 20 febrúar mynd @Rob Slavenburg 2026

                              Það er mikill gusugangur þegar hnúfubakurinn lendir @Rob Slavenburg 2026

          Hnúfubakurinn lendir á bakinu og hér á sjá Bægslin i lendingunni @Rob Slavenburg 2026

                                     Hnúfubakur svamlar i yfirborðinu mynd þorgeir Baldursson 

                              Gestir i Hvalaskoðun i dag 20 febrúar 2026 myndd þorgeir Baldursson 

                           Jóhann Heiðarsson skipstjóri á Whales mynd þorgeir Baldursson 

                 þetta par upplifði drauminn að fara i hvalaskoðunnar ferð mynd þorgeir Baldursson 

                        Ferðamenn i hvalaskoðun með Whales i Eyjafirði mynd þorgeir Baldursson 

                       unga stúkan átti 11 ára afmæli i ferðinn er hérna með móðir sinni  mynd þorgeir Baldursson

                                                   1357 Niels Jónsson EA  mynd þorgeir Baldursson 

19.02.2026 08:21

Samningar gufað upp og fyrirtæki skera niður

 

Páll Kristjánsson, framkvæmdastjóri Slippsins á Akureyri, bendir á að lítið .

Páll Kristjánsson, framkvæmdastjóri Slippsins á Akureyri, bendir á að lítið hafi farið fyrir umræðu um hve íþyngjandi kolefnisgjöld hafa verið fyrir sjávarútveginn. Ljósmynd/Þorgeir Baldursson

Þegar stjórnvöld boðuðu hækkun veiðigjalda var því víða spáð að hækkunin myndi ekki síst bitna á stoðfyrirtækjum sjávarútvegsins. Nú virðist þessi spá vera að rætast.

 

Páll Kristjánsson er framkvæmdastjóri Slippsins á Akureyri og segir hann samdráttarmerkin víða, og að mörg fyrirtæki í svipuðum rekstri séu að draga saman seglin. Verkefnastaða Slippsins er viðunandi til skemmri tíma litið en Páll segir þurfa að hafa mun meira fyrir verkefnaöflun en áður:

„Allir sem ég hef heyrt í eru búnir að missa bæði formlega og óformlega samninga. Allt sem hét viljayfirlýsingar og hönnunarsamningar er fyrir bí,“ segir Páll.

„Á haustmánuðum 2024 voru fyrirtæki að setja sig í stellingar því það stefndi í að nýsmíði nokkurra fiskiskipa fyrir íslenskar útgerðir væri á teikniborðinu en í dag hafa þau verkefni – öll sem við þekkjum til – verið blásin af og engin ný skip eru fyrirhuguð.“

 

Ríkissjóður verður af tekjum og fyrirtækin missa gott fólk

Páll nefnir dæmi um fyrirtæki sem þjónusta sjávarútveginn með alls kyns nýsmíði og þjónustu sem hafi fækkað starfsfólki umtalsvert, borið saman við byrjun árs 2025.

„Við erum í góðum málum miðað við marga aðra og hefur tekist að forðast uppsagnir umfram það sem kalla má eðlilegt í rekstri. Okkur auðnaðist að sjá í hvað stefndi og jukum enn frekar áherslu á sölu- og markaðsmál til að halda verkefnunum og tekjunum gangandi. Munurinn er þó sá að í dag þurfum við að sinna allt að tíu smærri verkefnum til að vera á sama stað og eitt stærra verkefni gaf áður.“

Reikna má með neikvæðum áhrifum bæði til skemmri og lengri tíma, og nefnir Páll að ríkissjóður hljóti að verða af tekjum þegar stoðfyrirtækin eru í vanda og þurfa að fækka fólki, en fyrirtækin séu jafnframt að missa dýrmæta verkþekkingu út úr rekstrinum sem ekki verði auðvelt að endurheimta þegar og ef verkefnastaðan batnar á ný.

Mynd úr safni af Blængi NK í flotkví Slippsins á .

Mynd úr safni af Blængi NK í flotkví Slippsins á Akureyri. Páll spáir samþjöppun. Morgunblaðið/Margrét Þóra

Óvissa og flækjustig

Páll tekur undir að ástandið í dag sé afleiðing þess útgjaldaauka sem hækkun veiðigjaldanna hefur valdið íslenskum sjávarútvegsfyrirtækjum, en einnig standi fyrirtækin mörg frammi fyrir óvissu um nákvæmlega hve mikil byrði gjöldin verði þegar upp er staðið. Útreikningur og innheimta gjaldanna er frekar flókin og ekki auðvelt fyrir útgerðir að sjá það nákvæmlega fyrir hvaða svigrúm er í rekstrinum fyrir nýsmíði og viðhald.

„Svo fór fólk að tala um leiðréttingu og sanngjarnt afgjald, en það var ekki horft til þess að um áratugaskeið hefur kerfið verið byggt upp eins og það er: það er að segja að aflaheimildir hafa gengið kaupum og sölum og veðsetning aflaheimilda var leyfð, hvaða skoðun sem fólk hefur svo á því,“ segir hann.

 

Tekjufall í sjávarútvegi

„Það er grunnmunur á því kerfi sem byggt hefur verið upp á Íslandi og t.d. Evrópu, þar sem verulegir styrkir hafa verið veittir til fjárfestinga í vinnslum, sem dæmi. Þær vinnslur keppa svo við íslenskar vinnslur, fjárfestingarkostnaður þeirra er verulegum mun lægri en íslenskrar vinnslu, sem svo hugsanlega er í eigu útgerðar sem hefur einnig fjárfest í aflaheimildum og ber af þeirri fjárfestingu kostnað. Það mætti segja að inn í verð aflaheimilda – þegar þær skipta um hendur – hafi þegar verið reiknuð rentan sem nú er bætt við til ríkisins sem upphaflega setti leikreglurnar. Rentan var færð til þeirra sem seldu sig út úr kerfinu og því voru það kannski mistök ríkisins að skattleggja sölu aflaheimilda ekki hærra í upphafi.“

Einyrkjum muni fækka

Fleira ber að skoða, eins og Páll bendir á: „Svo getum við nefnt kolefnisgjaldið sem lagt er á jarðefnaeldsneyti. Það hefur verið talsvert fjallað um álagningu kolefnisgjalds og áhrif þess á flug en minna hefur verið fjallað um áhrif þess á sjávarútveg og tengdar greinar. Í grunninn eru ekki til aðrir orkugjafar fyrir flugvélar og skip en jarðefnaeldsneyti, hvort sem um er að ræða fiski- eða flutningaskip. Til samanburðar er ekki innheimt kolefnisgjald í Færeyjum, sem t.d. styrkir samkeppnisstöðu þjónustuaðila í sjávarútvegi þar í samkeppni við íslenska.“

„Allir sem ég hef heyrt í eru búnir að missa bæði formlega og óformlega samninga. Allt sem hét viljayfirlýsingar og hönnunarsamningar er fyrir bí,“ segir Páll. Ljósmynd/Þorgeir Baldursson

Páll minnist nýlegrar greinar eftir Lárus Bl. Sigurðsson stjórnmálafræðing sem birt var á Vísi. „Þar kom fram að Ísland hefur greitt 144 milljarða króna vegna loftslagsmála 2017-2024 og jafnframt kom fram að við sem þjóð myndum greiða aðra 113 milljarða 2025-2029. Hvert fara þessir peningar frá þjóð sem líklega er umhverfisvænasta þjóð í heimi, þegar allt er talið, með yfir 80% orkunotkunar frá endurnýjanlegum orkugjöfum?“

Einnig telur Páll að hækkun veiðigjaldanna muni geta breytt umhverfi útgerðar. „Á sínum tíma starfaði ég hjá meðalstóru sjávarútvegsfyrirtæki þar sem við áttum reglulega í viðskiptum við einyrkja sem áttu nokkur þorskígildi en vantaði stundum meira, og var þá gert samkomulag sem gagnaðist bæði þeim og okkur. Þessum einyrkjaútgerðum hefur fækkað síðan þá en eru samt nokkrar eftir. Ég er hræddur um að í þessu nýja gjaldaumhverfi muni einyrkjunum fækka enn frekar. Það ætti ekki að koma á óvart ef næstu ár einkennast af enn frekari samþjöppun útgerðar.“

Heimild mbl.is/ 200 milur 

18.02.2026 23:26

112 dagurinn á Akureyri

Það var mikið um að vera hjá viðbragsaðilum i Eyjafirði i siðustu viku þegar haldið var uppá 112 daginn 

þessu var skipt niður i 2 daga og þeim skipuleggendum sem að komu að þessu verkefni þakkað kærlega fyrir

við vorum nokkur sem að tókum að okkur að drónamynda þetta og finnst okkur hafa tekist vel til með það 

við munum i framhaldinu klippa þetta saman og afhenda viðbragðsaðilum en hérna koma nokkar myndir 

                                                     112 dagurinn á Akureyri mynd þorgeir Baldursson 

                                                    112 ekið norður Hliðarbraut mynd þorgeir Baldursson

               Þyrla Landhelgisgæslunnar TF Gná lenti á bilastæðinu við Gleráartorg mynd þorgeir Baldursson 

                         TF Gná ásamt viðbragðsaðilum á bilastæðinu við Gleráartorg mynd þorgeir Baldursson 

                                  Löng biðröð var i að skoða þyrluna mynd þorgeir Baldursson 

                                     Fulltrúar Viðbragðsaðila við þyrluna mynd þorgeir Baldursson 

 

17.02.2026 22:31

Hvalaskoðun i Eyjafirði seinnihluti

Það er alltaf jafn gaman að fara i hvalaskoðun og að hitta skemmtilegt fólk 

ég  fór með bát frá whale watching Akureyri Hólmasól það var stutt að fara 

á miðunum voru 2 hnúfubakar sem að léku listir sinar og voru skipverja á Niels Jónssyn EA mjög nærri hvalnum

þegar hann fór i djúpköfun það sem af er ári hefur aðsóknin i þessa tegund afþregingar

sem verið með besta móti og fáir dagar fallið út vegna veðurs siðan i Nóvember á siðasta ári 

                                1357 Niels Jónsson EA mynd þorgeir Baldursson 17 febrúar 2026

                       Hnúfubakar annar i djúpköfun og hinn að anda frá sér mynd þorgeir Baldursson 

                        500 Whales i hvalaskoðun á Eyjafirði i dag mynd þorgeir Baldursson 

                       Hnúfubakur á leið i Djúpköfun i Eyjafirði i dag mynd þorgeir Baldursson                           

13.02.2026 22:23

Hvalaskoðun i Eyjafirði i dag

Það lék alldeilis veðrið við farþega i hvalaskoðun með whales i dag þótt að það væri fremur kalt

i veðri og frosti biti kættust þeir mjög þegar við Garðar Nielsson skipstjóri fundum hval sem að kom

annsi nærri bátnum og mátti heyra undrunnarhljóm farþeganna að sjá þessi stóru dýr svona nálægt 

i sinu villta umhverfi og ekki var annað að heyra en farþegarnir væru yfirsig hrifnir eftir túrinn 

heimasiðan whales.is

                                              Hnúfubakur i Eyjafirði i dag mynd þorgeir Baldursson 

                                                       Hvalaskoðun i dag mynd þorgeir Baldursson 

                                                      Hvalaskoðun i dag mynd þorgeir Baldursson 

                                                              Hvalaskoðun i dag mynd þorgeir Baldursson 

                                                               Hvalaskoðun i dag mynd þorgeir Baldursson 

11.02.2026 23:26

Cuxhaven NC 100 á Eyjafirði

Frystitogarinn Cuxhaven NC 100  Var á landa á Akureyri i siðustu viku og þá voru þessar myndir teknar þegar skipið 

hélt aftur til veiða og skipstjórinn hafði tekið smá hring fyrir ljósmyndarann 

                                       Cuxhaven NC 100 á siglingu á Eyjafirði mynd þorgeir Baldursson 2026

                                        Cuxhaven NC 100 á siglingu á Eyjafirði mynd þorgeir Baldursson 

                                                  Cuxhaven NC100 á útleið út Eyjafjörð mynd þorgeir Baldursson 

11.02.2026 22:44

Sjávarútvegsskólinn Gró-GTP

Fóru yfir árangur Sjávarútvegsskólans

Þorgerður Katrín utanríkisráðherra og Guðni Th. Jóhannesson, fyrrverandi forseti, sjást .

Þorgerður Katrín utanríkisráðherra og Guðni Th. Jóhannesson, fyrrverandi forseti, sjást hér með helstu framsögumönnum fundarins og Dr. Áslaugu Ásgeirsdóttur, rektor Háskólans á Akureyri. mbl.is/Þorgeir

Bókamerki óvirk fyrir óinnskráða Setja bókamerki

Árangur af tæplega þriggja áratuga starfi Sjávarútvegsskóla GRÓ var til umfjöllunar á sérstökum fundi, sem haldinn var í Háskólanum á Akureyri í morgun.

Á fundinum, sem bar yfirskriftina „Frá þekkingu til áhrifa: mannauðsuppbygging til sjálfbærrar þróunar í sjávarútvegi“, sögðu nemendur sjávarútvegsskólans frá því hvernig námið við skólann hefði nýst þeim til að stuðla að sjálfbærum fiskveiðum og uppbyggingu fiskeldis.

Í tilkynningu frá skólanum um viðburðinn kemur fram að nemendur skólans séu allir sérfræðingar og tilnefndir til þátttöku vegna mikilvægra starfa sinna við að stuðla að sjálfbærum sjávarútvegi í heimalöndum sínum.

Fundurinn þótti vel sóttur.

Fundurinn þótti vel sóttur. mbl.is/Þorgeir

Alls hafa 512 nemendur frá 68 mismunandi löndum útskrifast frá Sjávarútvegsskóla GRÓ frá því að skólinn var settur á fót árið 1997.

Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra flutti ávarp og Dr. Áslaug Ásgeirsdóttir, rektor Háskólans á Akureyri, bauð gesti velkomna. Guðni Th. Jóhannesson, fyrrverandi forseti lýðveldisins, sótti einnig fundinn. 

Einn fjögurra skóla og lykilstoð í þróunarsamvinnu

Í tilkynningunni kemur einnig fram að Sjávarútvegsskólinn sé einn fjögurra skóla sem starfræktir eru á vegum GRÓ – Þekkingarmiðstöðvar þróunarsamvinnu, en í gegnum þá er íslenskri sérþekkingu sem nýtist þróunarlöndunum til að stuðla að sjálfbærri þróun komið á framfæri.

Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra (t.h.) hlýðir á fundinn með aðstoðarmanni .

Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra (t.h.) hlýðir á fundinn með aðstoðarmanni sínum, Ingileif Friðriksdóttur. mbl.is/Þorgeir

Hinir skólarnir þrír starfa á sviði jafnréttis, jarðhita og landgræðslu. Skólarnir hafa um áratugabil verið ein af lykilstoðum í alþjóðlegri þróunarsamvinnu Íslands. Hinn 5. nóvember var haldinn svipaður viðburður í Háskóla Íslands um Jarðhitaskóla GRÓ.

Þá verða tveir viðburðir til viðbótar, sá fyrri fjallar um Jafnréttisskóla GRÓ og verður haldinn hinn 3. mars, og sá næsti fjallar um Landgræðsluskóla GRÓ þann 7. maí, en þeir munu báðir fara fram í Háskóla Íslands.

Heimild mbl.is / 200 milur 

Eldra efni

Um mig

Nafn:

Þorgeir Baldursson

Farsími:

8620479

Heimilisfang:

Reynihlið 15 D 604 Hörgárbyggð

Staðsetning:

Hörgárbyggð

Um:

Fréttaritari Morgunblaðsins til sjávar og sveita og öll Almenn Ljósmyndun sem að tengist Sjávarútvegi

Tenglar

Flettingar í dag: 3
Gestir í dag: 1
Flettingar í gær: 2164
Gestir í gær: 17
Samtals flettingar: 2698944
Samtals gestir: 72031
Tölur uppfærðar: 14.3.2026 00:01:23
www.mbl.is